Velkomin á Prjónagleðina 2024!

Kæra prjónafólk, við hlökkum til að sjá ykkur á Prjónagleðinni 7. - 9. júní 2024 

Prjónagleðin er prjónahátíð sem haldin er á Blönduósi aðra helgina í júní árlega.  Markmið Prjónagleðinnar hefur frá uppafi verið að sameina prjónafólk og skapa því vettvang til þess að hittast og miðla prjónasögum, nýjum hugmyndum og aðferðum, gömlum hefðum og síðast en ekki síst prjónagleðinni í öllum sínum fjölbreytileika.

Hér má finna vefverslun Prjónagleðinnar, þar er hægt að kaupa prjónaarmbönd og námskeið. Einnig verður hægt að kaupa sætaferð á Prjónagleðina þegar nær dregur.

Vefverslun Prjónagleðinnar

Allar nánari upplýsingar veitir Svanhildur Pálsdóttir - svana@textilmidstod.is